Öppdeit

Jæja, komið að smá öppdeiti.  Hmm, hvar skal byrja - jú, ég er alveg að verða komin í sumarfrí, hef mig hreinlega ekki í það að gera nokkurn skapaðan hlut, þó að það sé af nógu að taka.  Núna eru u.þ.b. bara 3-4 tímar þar til ég segi skilið við stofnunina í 5-6 vikur, er ekki alveg búin að ákveða hvað ég geri með fríið mitt, er nefnilega búin að segja upp vinnunni frá og með 20. ágúst, því að þá gerist ég námsmeyja (meyja, I wish) í KHÍ.  Hef sett stefnuna á upplýsingatæknikennarann!  Var að reyna að finna eitthvað sem ég gæti lært sem væri með lengra starfsheiti, en tókst það ekki! LoL  Það er ekki laust við að það sé farið að gæta tilhlökkunar hjá mér að takast á við þetta nýja verkefni.  Ég verð reyndar áfram eitthvað hérna í skólanum, í svona sérverkefnum... já, það verður erfitt að hætta að vinna hérna og vera með fingurnar í öllu, en það hlýtur að venjast, ég verð bara að vera dugleg að koma í kaffi og fá skúbbið í æð!  Tounge

Annars ætlum við stórfjölskyldan að leggja land undir fót í dag og bruna á ættarmót í Borgarfirðinum.  Ég á bara eftir að pakka öllu og versla, en það hlýtur að reddast, vona bara að ég muni eftir öllu!  Ég mundi meira að segja eftir því að fara með tjaldsúluna sem gaf sig í fyrra í viðgerð fyrr í vikunni svo að þetta ætlar allt að smella saman.

Vonum bara að veðrið verði svona það sem eftir er af fríinu mínu!!!!!!!!!!  Hvað gerir maður annars í nokkrar vikur í fríi með ekkert planað??


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á bara að skella sér í skóla!? Dugleg ertu. Ég myndi nú bara liggja í sólbaði á nýja sólpallinum í fríinu ;)

Elsa Þóra (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 13:29

2 identicon

plíííís koddu í heimsókn til mín!!!! veit ekki hvað ég á af mér að gera í öllu þessu fríi.....

Heiðdís (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 21:41

3 Smámynd: Rosaleg

Vonandi verður einhver sól til að liggja í sólbaði í, það er eiginlega plottið í sumar, að vera soldið á pallinum. 

Heiða mín, er búin að fá sumarbústað nálægt þér eina viku í byrjun Ágúst...þú verður flutt er það ekki annars??

Rosaleg, 2.7.2007 kl. 09:17

4 identicon

Flyt væntanlega í byrjun ágúst, hvar er bústaðurinn?

Heiðdís (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband