Gubbupest...

...er ekki sniðug!  Sérstaklega þegar barnið gerir ekkert annað en að æla yfir mömmu sína, því að auðvitað vita allir að það er best að vera hjá mömmu ef að manni líður illa!!  Öskrandi

En mömmum finnst ekki gaman að láta gubba á sig, alls ekki á nóttunni og alveg sérstaklega ekki þegar þær sitja á klósettinu og lesa blað!  Fýldur

Annars fer heilsufarið hér á bæ vonandi batnandi - nema að restin af fjölskyldunni fari líka að gubba, vonandi gerist það ekki, þvottavélin hefur gengið non-stop í dag með gubbusængurverum og handklæðum og fötum - held að það þurfi að gefa henni smá frí!!  Glottandi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband