klóri klóri klóri klór...

OJ

 

Þessi ófögnuður birtist í skólanum og á leikskólanum í dag - ég er búin að sitja heima og klóra mér í hausnum í allt kvöld!!  Held að ég sé meira en lítið ímyndunarveik, ekki nóg með að manni klæji í hausnum, heldur allstaðar annarsstaðar líka, meira að segja í framan...hehehe

Hugsa að ég fari nú samt í kembingu - til að róa sálartetrið!

 Óákveðinn

Annars er bara tannsi á döfunni á morgun - víííí - endajaxlataka (verður maður ekki að horfa á björtu hliðarnar á svartnætti heimsins?) 

Helgin framundan, sé fram á að þurfa að liggja soldið yfir stærðfræðiskruddunum svona inn á milli fimleika og sunnudagaskóla.  Kallinn á leiðinni heim, stoppar alveg í rúma tvo sólarhringa í þetta skipti.

Brúðarmyndirnar eru annars komnar fyrir áhugasama - gæti hnoðað í vöfflur ef að einhver ákveður að taka rúnt hingað útí eyðimörkina á hjara veraldar!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband