Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Barmsmíðar...

Hvert í ósköpunum er maður eiginlega fluttur??  Ég bara spyr.  Hélt einhvernveginn að maður hefði skilið allt svona rugl eftir útí London, að svona gæti ekki gerst í henni saklausu Innri-Njarðvík.  Ég er svo aldeilis hlessa.  Held reyndar að þetta sé ekkert nýnæmi.  Í dag er bara talað um þetta og kært, áður fyrr var barasta ekkert gert í málum sem þessum!  Tímarnir breytast og mennirnir með.


mbl.is Tveimur 12 ára stúlkum misþyrmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elítan...

Guð minn almáttugur, ég held að ég gæti orðið uppgötvuð eða eitthvað á næstunni.  Samkvæmt stjörnuspánni minni er minn tími víst að koma.  Ég veit reyndar ekki alveg uppá hvaða stall ég er að fara að klifra, ekki var ég skipuð ráðherra, og ekki fékk ég feita stöðuhækkun, en ég verð að játa að ég er alveg þrælspennt að sjá hvað þetta verður, múhahahaha!  Wink

 Vatnsberi Vatnsberi: Þú stígur upp fyrir múginn og verður valinn til að sinna sérstöku verkefni. Það er erfitt að tilheyra elítunni og þig gæti langað að hverfa aftur í fjöldann. En svo verður ekki, svo sættu þig við nýju stöðuna.


Smíðar...

deckingNú um hvítasunnuhelgina er staðið í stórræðum hérna í sveitinni.  Það er verið að byggja sólpall. Allir áhugasamir um mokstur og hamarsbeitingu eru velkomnir að taka þátt í þessu með okkur.  Wink  

Stjörnuspáin getur oft verið glettilega sannspá...

Vatnsberi Vatnsberi: Það sem er sagt í gríni getur virkað sem gagnrýni, alveg sama þótt þú meintir það ekki þannig. Það getur reynst jafn flókið að útskýra mál þitt, betra er að læra af mistökunum.

Hvað oft hef ég ekki lent í þessum aðstæðum, síðast bara fyrir tæpum mánuði þegar ég móðgaði vinkonu mína sem hafði farið í rándýra greiðslu.  Ég get verið alveg einstaklega orðóheppin á köflum, kemur allt öfugt út úr mér.  Pjúff, þess vegna er ég stundum þessi þögla týpa bara, fæst orð bera minnsta ábyrgð!


Lambakjöt og lambakjöt

leg_of_lambLambakjöt er ekki bara lambakjöt.  Ég tel mig nú hafa smakkað lambakjöt frá nokkrum löndum, breskt, welskt, skoskt, írskt og ný-sjálenskt.  Ég verð nú að segja að ég skil vel viðhorf landbúnaðarráðherra með að flytja ekki inn erlent lambakjöt þegar það er nóg af því hér og miklu betra kjöt!  Og fyrir utan það að ætla að flytja inn kjöt hinum megin af hnettinum, að þá er það hreinlega ekki eins gott og þetta íslenska.  Trúið mér, ég er búin að reyna.  Grilla og steikja og sjóða.  Það er bara eitthvað auka ullarbragð af þessu lambakjöti sem að ég hef verslað þegar við bjuggum úti, ef að maður ætlar að grilla það eða ofnsteikja.  Reyndar er það ágætt soðið í kjötsúpu, þá finnur maður ekki mikinn mun.  Þetta ný-sjálenska er samt mun skárra heldur en lambakjöt upprunnið í Bretaveldi, sem er óætt með öllu sökum ullarbragðs og óbragðs.  En samt, það kemst ekkert lambakjöt sem ég hef smakkað, með tærnar þar sem það íslenska hefur hælana! 


mbl.is Ekki fullreynt með lambakjötið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að stytta sér leið...

ist2_605709_cut_grass_with_dew_drops_on_white_background...ég verð nú að játa það uppá mig að ég stytti mér oft leið yfir garða nágrannanna þegar ég er t.d. að labba uppí skóla.  Ég verð nú samt að segja að eftir að hafa lesið þessa frétt að þá er mér snarbrugðið.  Pælið í því ef að það væri barasta búið að skjóta mann!!!  Fyrir að stytta sér leið, í vinnuna eða heim úr vinnu. Plaff, ekki ganga á mínu grasi!!  En meðan að það eru ekki komnar girðingar held ég áfram að stytta mér leið hugsa ég, aðrir gera það á okkar grasi og ég á ekki von á því að fara að plaffa neinn niður fyrir að gera það, en er samt komin með á planið að girða á næstunni!! 


mbl.is Skaut nágrannann til bana fyrir að ganga á grasinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaflaskil...

Það má segja að miðvikudagurinn 23. maí 2007 marki ákveðin kaflaskil í lífi okkar hjónanna.  Hann skrifaði undir ráðningasamning hjá ÍSLENSKU fyrirtæki og ég gekk frá umsókn minni við ákveðna menntastofnun sem að ég er nokkuð bjartsýn á að fá inngöngu inn í.  Svo er bara að bíða og sjá hvað verður.  Alla vegna stefnir í það að grasekkjudagar mínir séu taldir í bili, jibbííííí!!!


Blundurinn

redlightMikið agalega getur maður nú orðið "t...ulegur" á því að hanga svona heima.  Veit ekki hvað ég geri þegar ég þarf að fara aftur að vinna um mánaðarmótin.  Pjúff.  Enginn síðdegisblundur!  Í gær þurfti ég að fara í bæinn að hitta lækninn minn og svo að redda þeim upp í vinnu (þó að ég eigi nú fræðilega séð að vera í veikindafríi), svo að fólk fengi nú borguð laun og þá var kominn tími til að sækja snúllurnar á leikskólann svo að við kæmumst nú á læknavaktina til að láta kíkja í eyrun á afmælisbarninu, sem að reyndist vera með eyrnabólgu á 3. ára afmælisdeginum sínum.  Ég get alveg játað það hér og nú að ég sofnaði á biðstofunni hjá lækninum.  Alveg gjörsamlega búin á því eftir að hafa misst af mínum daglega síðdegisblundi.  Ég hrökk reyndar upp af værum blundi þegar læknir kallaði upp konu með mjög svipað nafn og mitt, og vá, ég var alveg steinsofandi.  Skil vel manninn sem að sofnaði á rauða ljósinu.  Hef barasta aldrei upplifað aðra eins þreytu og þrekleysi, að geta sofnað á almannfæri - það er ekki ég!  Jæja, ætli það sé þá þekki best að fara að leggja sig, geiiiisssp...  Gasp


mbl.is Sofnaði á rauðu ljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

meiri pöddur...

...fyrst býflugur, svo geitungar og svo núna aðmírálsfiðrildin.  Ég sem að átti bara fullt í fangi með venjulegar íslenskar fiskiflugur og mýflugur og þessar hefðbundnu köngulær.  Hvað næst spyr ég bara.  Verður það tarantúlur og svarta ekkjan.  Eða þessar stóru svörtu með loðnu lappirnar eins og bjuggu hjá okkur í London..........hrollur hrollur hrollur Frown

Mín er ekki skorkvikindavinkona þessa dagana allavegna, finnst þau alveg rosalega mikið ullabjakk!

Mig langar svo að bæta því við að það eru bara 222 dagar til jóla!


mbl.is Aðmírálsfiðrildin á ferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæðradagurinn í dag...

roses...og gleðilegan mæðradag, mæður nær og fjær!  Ég var allavegna svo heppin að fá voða fínan blómvönd frá snúllunum mínum, alveg merkilegt hvað þær eru duglegar að redda sér sjálfar í Blómaval, ekki eldri en þær eru!  Wink


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband