Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Nú verð ég bara að tjá mig...

ungar...skrapp í búð á miðvikudaginn (sem var hinn 16. dagur janúarmánaðar) og fékk hálfgert sjokk. Það eru komin páskaegg í búðirnar og ég er enn að klára jólakonfektið!  Mér finnst nú full langt gengið að setja páskaegg í búðir í janúar - þó að páskarnir séu í mars!

Ég trúi því nú ekki að ég sé ein um þessa skoðun!

 Annars er ég byrjuð í skólanum á fullum krafti aftur. Jólaprófin komu mjög vel út hjá mér, mér tókst náttúrulega að brillera í öllum fögum svo nú er eins gott að standa sig til að halda standardinum uppi!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband