Nú verð ég bara að tjá mig...

ungar...skrapp í búð á miðvikudaginn (sem var hinn 16. dagur janúarmánaðar) og fékk hálfgert sjokk. Það eru komin páskaegg í búðirnar og ég er enn að klára jólakonfektið!  Mér finnst nú full langt gengið að setja páskaegg í búðir í janúar - þó að páskarnir séu í mars!

Ég trúi því nú ekki að ég sé ein um þessa skoðun!

 Annars er ég byrjuð í skólanum á fullum krafti aftur. Jólaprófin komu mjög vel út hjá mér, mér tókst náttúrulega að brillera í öllum fögum svo nú er eins gott að standa sig til að halda standardinum uppi!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ómægod,,,, í hvaða búð fórstu?????  Sammála Ingu Rún, lágmark að janúarútsölurnar séu búnar sko.............

Sigurbjörg (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 09:43

2 Smámynd: Rosaleg

Þetta var í 10-11

Rosaleg, 22.1.2008 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband