Samvera

c_documents_and_settings_administrator_desktop_anita_spila.jpg

Jæja, nú er maður búinn að vera giftur í hátt í þrjá mánuði og ég fór svona að ganni að telja saman samverustundir okkar saman síðan þá.  Mér reiknast svo til að við höfum verið gift í 81 dag.  Af þessum 81 degi hefur hann verið ca. 43 daga í burtu.  Inni í þessari tölur eru reyndar hálfir dagar þar sem hann er annað hvort að koma eða fara!  Svo að það má segja að maður sé hálfgerð grasekkja.  Annars er nú von á bóndanum heim í nótt, bara lúxus þessi vika, hann verður heima fimmtudag OG föstudag Hlæjandi, mikil hamingja á bænum! 

Af húsbyggingarmálum er allt rólegt að frétta - málarinn ætlaði að vera búinn, en það strandar eitthvað á smiði til að koma og negla einn fo%&$#%&g lista í loftið, svo að þá gerist ekki neitt!  Er farin að hallasta að þessi rúm 33% sem segja að húsið verði aldrei tilbúið í skoðanakönnuninni hafi rétt fyrir sér. 

Set hérna með eina mynd af tónsnillingi framtíðarinnar, þarna er hún að slá sína fyrstu takta á leikskólanum, tekur sig bara vel út stelpan.  Svalur

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hún er náttúrulega bara æðisleg, þarna með þríhornið :)

Inga Rún (IP-tala skráð) 5.10.2006 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband