Gleðilegt ár og svo fram eftir götunum! :o)

Langaði bara að óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka fyrir þau gömlu og góðu sem við höfum átt saman í gegnum tíðina.

Hér á heimilinu hafa jólin og áramótin verið umvafin veikindum, allt heimilisfólkið búið að liggja yfir hátíðarnar og ég ligg enn. Já það er ekkert grín að slá niður og enda með lungnabólgu. Sick En allir eru að hressast og ég vænti þess að verða orðin rólfær innan fárra daga.

Nú þar sem þessi jól voru af rólegri gerðinni að þá var þeim mest varið í að horfa á imbann og að púsla Wasgij? púsluspili. Er búin að spila óteljandi Bubbles leiki og sofa út í eitt. Held svei mér þá að ég hafi aldrei tekið því svona rólega um ein jól. En jæja, maður hefur bara gott af því! Whistling

Nú fer í hönd sá tími að bíða eftir að einkunnir skili sér frá kennurum og er ekki laust við að ég sé orðin hálf pirruð á sumum kennurum sem ekki hafa einu sinni skilað svo mikið sem einni einkunn fyrir verkefni sem unnin voru á önninni. Er búin að fá út úr því prófi sem ég fór í síðast af öllu og öllum verkefnum í þeim kúrs og er barasta mjög sátt, enda er ekki annað hægt Wink

Er nú búin að skipta við vinkonu mína á Wasgij? pússluspili svo að ég er komin með ferska þraut í hendurnar - mér ætti þá ekki að leiðast á næstunni. Þarf samt eiginlega að fara að hressast þar sem vinna hefst eftir helgi - og ég á margt eftir ógert á næstunni. Blessunarlega byrjar skólinn ekki fyrr en undir miðjan janúar Grin

Vona að árið 2009 verði okkur öllum gott og heilladrjúgt ár!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan bata, vonandi hressistu fljótlega. Hvað er Wasgij? pússluspil? Hef aldrei heyrt um svoleiðis í sveitinni í útlandinu ;)

Elsa Þóra (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 16:41

2 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Vonandi batnar þér fljótt. Hvað ertu með stórt Wasgij púsl? Þetta eru alger snilldarpúsluspil :)

Kristín Guðbjörg Snæland, 6.1.2009 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband