Fimmtudagur, 18. maí 2006
Júró hvað?
Verður spennandi að sjá hvernig Silvía Nótt stendur sig á sviðinu í kvöld, ég og mín fjölskylda ætlum allavegna að fylgjast spennt með. Allt getur gerst! Ætli maður verði ekki bara að vera hóflega bjartsýnn á það að hún komist áfram, mar er nú ekki búinn að gleyma hvernig fór fyrir Selmu greyinu í fyrra!!
Brúðarkjólamátun núna seinnipartinn - spennandi að sjá hvort að kjóllinn muni passa!
Margt búið að vera að gerast undanfarið, Aníta komin með enn eina eyrnabólguna og í þetta skipti vellur gröfturinn bara út útaf rörunum - þau virka allavegna rétt og hún virðist ekkert finna fyrir, nema bara að þetta er heldur subbulegt! Komin á pensillín en eina ferðina, nóg búið að bryðja af því á mínu heimili undanfarið. Annars á snúllan afmæli á sunnudaginn svo að undirbúningur fyrir þau hátíðarhöld er í fullum gangi.
Afmælisbarn dagsins er hún Anna Dóra móðursystir mín og er hún XX ára í kvöld Hamingjuóskir til hennar í tilefni dagsins!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.