Þriðjudagur, 20. maí 2008
Eurovisjón 1
Ákvað að dæma sjálf í fyrri undankeppninni og þetta er niðurstaðan segi ég - þau sem eru merkt með rauðu komast pottþétt áfram en þau með græna eru að slást um 10. sætið að mínu mati - sjáum hvað sannspá ég reynist!
- Montenegro krumpuð skyrta
- Ísrael vöðvabúnt sem söng eins og kelling svo sem í lagi lag
- Eistland sveittir perralegir karlar og hálf naktar gellur ógeðslegir
- Moldavía rauðir eyrnalokkar og bangsi mikið rok á sviðinu leiðinlegt lag berfætt þurfa líklega að taka rútuna heim.
- San Marino drungalegur gaur sem slapp líklega úr dýflissu allir mættu í fermingarfötunum. og enn með eighties klippinguna.
- Belgía Sound of music stæl íklædd austurríska fánanum full fjölþreifin við sellóleikarann sviðinu agalega happý og leiðinlega euróvisjónlegt.
- Aserbaijan Töff og getnó gaurar komast örugglega áfram
- Slóvenía 2 svarthöfðar á Heelies skóm mættir á svið með grænni gellu agalega vond litasamsetning á búning, skærgrænt pils og fjólublár toppur
- Noregur flottur blár kjóll flott melódía
- Pólland fegurðardrottningarkjóll með hálsmál niður á nafla
- Írland Kalkúnn frekar spes ágætur með sósu og brúnuðum kartöflum
- Andorra skrýtið höfuðskraut, líklegast gamall servíettuhaldari.
- Bosnía&Hersigóvína prjónandi brúaðarkjólagellur og argintæta syngur lagið doktor gunna stæl með möggu stínu í aðalhlutverki.
- Armenía svaðalega þjóðlegt, töff gella og flugeldasýning keli keli keli hoppandi rass og brjóst líklegt til að komast áfram
- Holland arabískur taktur glimmer vantaði magadansmeyjarnar
- Finnland Lordi wannabe þungarokk og karlar berir að ofan flugeldar og eldspúandi taktur ekki svo slæmt
- Rúmenía súkkulaði sæt ástarballaða - hroðalegur kjóll hjá henni, leður og tjull með grænum lakkrísreimum.- voða melódískt og óperulegt
- Rússland keimlíkt öðru lagi sem ég man ekki hvað heitir nær líklega langt útaf strativaríusfiðlunni og skautasvellinu. Nær örugglega áfram í úrslitin
- Grikkland lítil sæt barbídúkka í stuttu pilsi britney spears style brjóstadill og magadans nær örugglega í gegn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.