Þriðjudagur, 20. maí 2008
og niðurstaðan varð...
Jæja - ég hafði rétt fyrir mér að nokkru leyti...ekki alveg út í hött hjá mér en hér að neðan eru þau lög sem komust áfram bláletruð.
- Montenegro krumpuð skyrta
- Ísrael vöðvabúnt sem söng eins og kelling svo sem í lagi lag
- Eistland sveittir perralegir karlar og hálf naktar gellur ógeðslegir
- Moldavía rauðir eyrnalokkar og bangsi mikið rok á sviðinu leiðinlegt lag berfætt þurfa líklega að taka rútuna heim.
- San Marino drungalegur gaur sem slapp líklega úr dýflissu allir mættu í fermingarfötunum. og enn með eighties klippinguna.
- Belgía Sound of music stæl íklædd austurríska fánanum full fjölþreifin við sellóleikarann sviðinu agalega happý og leiðinlega euróvisjónlegt.
- Aserbaijan Töff og getnó gaurar komast örugglega áfram
- Slóvenía 2 svarthöfðar á Heelies skóm mættir á svið með grænni gellu agalega vond litasamsetning á búning, skærgrænt pils og fjólublár toppur
- Noregur flottur blár kjóll flott melódía
- Pólland fegurðardrottningarkjóll með hálsmál niður á nafla
- Írland Kalkúnn frekar spes ágætur með sósu og brúnuðum kartöflum
- Andorra skrýtið höfuðskraut, líklegast gamall servíettuhaldari.
- Bosnía&Hersigóvína prjónandi brúaðarkjólagellur og argintæta syngur lagið doktor gunna stæl með möggu stínu í aðalhlutverki.
- Armenía svaðalega þjóðlegt, töff gella og flugeldasýning keli keli keli hoppandi rass og brjóst líklegt til að komast áfram
- Holland arabískur taktur glimmer vantaði magadansmeyjarnar
- Finnland Lordi wannabe þungarokk og karlar berir að ofan flugeldar og eldspúandi taktur ekki svo slæmt
- Rúmenía súkkulaði sæt ástarballaða - hroðalegur kjóll hjá henni, leður og tjull með grænum lakkrísreimum.- voða melódískt og óperulegt
- Rússland keimlíkt öðru lagi sem ég man ekki hvað heitir nær líklega langt útaf strativaríusfiðlunni og skautasvellinu. Nær örugglega áfram í úrslitin
- Grikkland lítil sæt barbídúkka í stuttu pilsi britney spears style brjóstadill og magadans nær örugglega í gegn
Athugasemdir
Norge er í skýjunum í dag. Við á heimilinu erum eiginlega komin með ógeð á þessu lagi en það er á A-lista á ÖLLUM útvarpsstöðvunum ?!?!?!
Elsa Þóra (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 06:38
He he he he flottar athugasemdir. Gæti ekki verið mikið meira sammála þér með þær. Hlakka til á morgun.
Kristín Guðbjörg Snæland, 21.5.2008 kl. 11:08
Kvitt á bloggrúntinum. Flott júróvisjon komment, bara nokkuð klár í þessu stelpa.....
Sigurbjörg (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.