Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Ljúft að vera í sumarfríi.
Dagskrá dagsins var á þá leið að ég ætlaði að þvo þvott og þrífa svolítið - en hún riðlaðist heldur betur vegna veðurs. Við mæðgur skriðum á fætur rúmlega 9 og þá voru það morgunverkin, lesa blöðin, borða morgunmat ásamt tannburstuna og myglhreinsun. Að því loknu ákváðum við mæðgur að fara í gönguferð um hverfið og tókum með okkur nesti og teppi og varð þetta hin fínasta lautarferð hjá okkur enda einmunablíða í dag - sól og "svo-til-logn." Eftir lautarferðina skelltum við okkur í sundlaugina ásamt um það bil hálfu bæjarfélaginu, svo mikill var mannfjöldinn. En ljúfur dagur á allan hátt - verst að það er eitthvað að draga fyrir sólu núna, það hefði verið næs að leggjast út á pall núna! Vonandi eru þessir dagar forsmekkurinn á því sem koma skal restina af fríinu!
Athugasemdir
Bara nice! Gott að þú fékkst svona sólardag loksins þegar þú ert komin í frí
Heiðdís (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 10:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.