Sunnudagur, 14. september 2008
Kraftur í kellu!
Ég verð nú að segja að ég dáist að þessari 19 barna móður hér að neðan. Útivinnandi með 19 börn og 8 barnabörn - væntanlega eru þó flest barnanna orðin vel sjálfbjarga þar sem hún er orðin 47 ára. Svo er maður eitthvað að kvarta hérna á skerinu þó að maður sé með tvö börn, heimili, vinnu og í fullu námi - hvernig skyldi þvottakarfan vera á hennar heimili?
Já - aldeilist kraftur í kellu!
Nítjánda barnið kom á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki væri ég til í að skipta við þessa konu en hún er rík af afkomendum. Það verður ekki af henni tekið :)
Kristín Guðbjörg Snæland, 15.9.2008 kl. 16:52
Þvottakarfan hennar..... róleg sko ég er allavega rosa glöð með mína núna
Sigurbjörg (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 14:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.