Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Svefnvenjur
Held að börn sofi yfirhöfuð of lítið hér á landi, finn það bara á mínum grísum að þær eru ómögulegar ef þær fá ekki sinn 10-11 tíma svefn á hverri nóttu. Þurfa helst að vera komnar í rúmið klukkan 20 til að vera nokkuð sprækar klukkan 7.
Forráðamenn hvattir til að gæta þess að börn fái nægan svefn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Ljósanótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28. ágúst 2007
Skólabúningar
Jæja, fyrst að ég lýsti yfir hrifningu minni af skólabúningum í fyrri bloggfærslu, ákvað ég að skella inn þessari líka og smella með mynd af skólabúningnum úr mínum skóla. Þar voru búningar teknir upp í síðustu viku og reynslan ekkert nema jákvæð. Áfram skólabúningar!! Myndin er fengin að láni frá vf.is
Flestir vilja vera í skólabúningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28. ágúst 2007
Pennaveskjakapphlaupið
Ég man þá tíð að enginn var maður með mönnum nema að hann ætti að minnsta kosti tveggja hæða pennaveski, þriggja hæða voru þó flottust, þar sem að sér hólf var fyrir trélitina, annað fyrir tússlitina og sér hæð fyrir blýantana og skrifáhöldin öll. Og auðvitað varð að vera skrautleg mynd helst af einhverri þekktri teiknimyndapersónu utaná. Vá hvað mér fannst þessi pennaveski hrikalega spennandi og man þegar mér áskotnaðist eitt að gjöf frá ömmu og afa - á þremur hæðum, hvorki meira né minna, það var sko kúl! En mikið assgoti gat maður öfundað hina sem áttu flottu pennaveskin - á meðan maður átti ekki sjálfur nema einnar hæða!
Mér finnst þetta með að kennararnir panti ritföngin stórsniðugt og ég er líka algjörlega hlynnt þessu með skólabúningana, skapa samheldni, draga úr öfund og einelti. Bara kúl! :o)
Kennararnir panta ritföngin og foreldrafélagið innheimtir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. ágúst 2007
Skólinn er byrjaður...
932 nýnemar við Kennaraháskóla Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
Já ástin mín...
Eignaðist eineggja fjórbura; líkurnar einn á móti 13 milljónum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
Síðasti dagur riddarans...
...í dag lék ég hlutverk mitt sem riddari í síðasta skipti. (börnin héldu að ég væri riddari en ekki ritari, hehe) Á mánudaginn hefst síðan alvara lífsins og skólinn byrjar. Ég verð nú að segja að það er með trega sem ég kveð þetta starf mitt, en sem betur fer þarf ég ekki að kveðja starfsfélagana, því ég verð áfram með tölvurnar - væntanlega bíður mín svo staða þegar ég útskrifast eftir 3 ár!
Annars var fríið ljúft en þessi vika hefur verið alveg agalega erfið, vakna á morgnanna klukkan 7 er hryllilegt og koma okkur útúr húsi á réttum tíma er rosalegt átak og þreytan sem að herjar á mann á kvöldin er gífurleg. En væntanlega skánar þetta nú bráðlega, þegar maður venst rútínunni!
Ætlum að skella okkur í brúðkaup á morgun til Skúla og Erlu og í bíó á sunnudaginn með stelpurnar. Annars veitir okkur eflaust ekki af að taka smá skurk i pallamálunum, en það vantar herslumuninn uppá að hann verði tilbúinn. En þetta fer allt að falla allt saman í farveg þegar maður er hættur að vera í sumarfríi og eyðir meiri tíma heimavið. Erum nú búin að afreka helling innanhúss í sumar, setja upp ljós og snaga og spegil og myndir og lyfjaskáp og svona dyttinn og dattinn. Næstu vikurnar verður það eingöngur skúrinn og pallurinn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2007
Allt bara creisý!
Já, það má með sanni segja að mér finnst allt hafa verið creizý í þjóðfélaginu undanfarna daga. Helgin sérstaklega! Þið vitið svo sem hvað ég er að tala um, ýmislegt í gangi sem að maður hélt að viðgengist bara á götum erlendrar stórborgar - en okkur fer svo sem óðum fjölgandi hérna á klakanum, kannski ekki við öðru að búast en að því fylgi sömu vandamál og annarsstaðar í heiminum.
Af öðrum málum er mest lítið að ske, er náttúrulega bara upptekin við að vera í sumarfríi, og þar af leiðandi keppist um að hafa það næs! Erum búin að ferðast smá síðasta mánuðinn, og leggjum land undir fót aftur nú um verslunarmannahelgina, verðum í bústað í nágrenni Laugarvatns með vinum og vandamönnum. Allavega er maður dauðfegin að vera í bústað, en ekki að velkjast í tjaldi einhversstaðar, það spáir ekki gæfulega fyrir suðurlandið um helgina! Heppin ég að vera ekki að fara til eyja!!!
Hef ekki enn náð að krækja mér í Harry Potter, spurning um að biðja eiginmanninn um að koma með eintak með sér úr stóru flugvélinni í kvöld! Hún er eflaust til á Heathrow!
Tókst á við frumraun mína í snúða og skinkuhornabakstri í gær, og tókst svona glimrandi vel hjá mér, það er ekki loku fyrir það skotið að þetta verði endurtekið í nánustu framtíð! Uppá síðkastið finnst mér ekkert smá gaman að baka brauð og þessháttar með geri, hef ekki gert mikið að því um ævina.
Bíllinn er á verkstæði í dag, og hinn bíllinn uppá flugvelli bíðandi eftir eiganda sínum sem að væntanlega skilar sér heim í kvöld. Bíllinn var sendur á verkstæði þar er mér fannst hann reykja of mikið, og þegar bíllinn er farinn að reykja meira en ég, að þá er kominn tími fyrir heimsókn á verkstæði!!! Vonandi finna þeir hvað er að hrjá greyið "litla" svo að við getum farið á honum í sveitina um næstu helgi.
Snúllurnar eru þessa stundina að lúlla hjá ömmu sinni, ég skrapp í bíó í gærkvöldi við aðra konu, og sá hina stórgóðu chick flick Georgia Rules, mæli alveg með henni, ég skemmti mér konunglega, gaman, drama og átök skiptast á að skemmta manni eða græta!
Vá, ég trúi því annars ekki að ég eigi bara eftir rúma viku í sumarfríi! aaaaarrrrrggggghhhhh......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)