Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
Föstudagur, 17. júlí 2009
ESB aðildarviðræður Íslendinga
Já takk - mikið agalega varð ég nú glöð þegar Alþingi samþykkti þetta í gær. Er ekki frá því að í brjósti mér slái lítið Evrópuhjarta.
Eftir að hafa búið í Evrópusambandsríki í nokkur ár og kynnst kostum þess að kaupa matvöru á viðunandi verði, borga af lánum á viðunandi kjörum (já, ótrúlegt en satt, lánið lækkaði við hverja afborgun!) og svo fram eftir götunum get ég ekki verið annað en sátt að Íslendingar sem þjóð ætli loksins að stíga útfyrir þröngsýnismúrinn sinn og skoða hvernig aðrir höndla hlutina!
Ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum á sínum tíma þegar ég komst að því að Ísland er ekki best í heimi - því hafði verið innprentað í uppeldinu heima fyrir og af skólum, landi og þjóð en reyndist svo vera opinber heilaþvottur. Eftir að hafa búið í 300000 manna borgarhluta í stórborg erlendis finnst mér óneitanlega margir Íslendingar vera haldnir svolitlu mikilmennskubrjálæði! Góð samlíking finnst mér að Íslendingar eru soldið eins og hestar með svokallaða"hliðarleppa" - sjá bara beint fram en ekki til hliðanna!
Vona innilega að þessar aðildarviðræður verði farsælar svo Íslendingar framtíðarinnar geti búið við stöðugra hagkerfi og sæmileg lífskjör!Erfiðar viðræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. júlí 2009
Eurovision?
Jahérnahér - bæði sveitastjórnarkosningar og úrslitakvöld Eurovison sama kvöldið - ég er hrædd um að það verði einhverjir í partý stuði það kvöldið og bærinn ef til vill málaður rauður
Það verður allavegna engin fjölmiðlalognmolla í lok maí á næsta ári!
http://en.wikipedia.org/wiki/Eurovision_Song_Contest_2010
Kosið til sveitarstjórna 29. maí á næsta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)