Þriðjudagur, 23. september 2008
Mín versta martröð...
...ég hef oft vaknað upp um miðja nótt og fundist ég heyra eitthvað þrusk frammi. Hef þá farið að ímynda mér að það sé einhver kominn inn í húsið að stela eða áreita prinsessurnar.
Endar náttúrulega alltaf með því að ég er komin á stjá að athuga hvort að ekki sé allt í lagi með þær - en nætursvefninn er náttúrulega fyrir bí!
Hroðaleg lífsreynsla sem þetta hlýtur að vera!
Sætir áfram gæslu vegna kynferðislegrar áreitni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það á náttúrulega að vera búið að stoppa þennan mann fyrir lifandis löngu. Þessi maður var stöðvaður með lítið barn í höndunum á leið frá húsi á Seyðisfirði og kom við á suðurlandi á leiðinni í bæinn. Ef hann verður ekki stöðvaður, á honum eftir að takast að ræna of misþyrma barni.
Hallur (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 18:08
Þetta er ógeðslega krípí gaur!!!!! Það væri lítið mál að stela minni prinsessu sofandi því hún sefur svo fast. Hræðileg tilhugsun!!!
Kristín Guðbjörg Snæland, 24.9.2008 kl. 10:53
það er eins og ég segi alltaf það á að læsa öllum hurðum þegar maður fer að sofa og ganga þannig frá gluggum að fólk vakni ef einhver ætlar inn.
Í dag eru svo ótrúlega margir í annarlegu ástandi og klikkaðir, tökum ekki neina sénsa hér.
María (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.