Fimmtudagur, 12. mars 2009
Agi...
...í lagi - ja, eða ólagi? Finnst þetta reyndar ágætt ráð hjá kallinum að beita sektum, enda þetta sama vandamál í mörgum skólum hér á landi! Farsímaeign nemenda er með mesta móti og símar í dag orðnar græjur hinar mestu, myndavélar, myndbandstökuvélar, hljóðupptökutæki, tónlistarspilarar og útvörp! Allt getur þetta valdið truflun á hefðbundnu skólastarfi og vegna persónuverndarsjónarmiða óásættanlegt að börn séu með síma í skólanum. Kennarar eru teknir upp í kennslustund eða nemendur í búningsklefum - allt er þetta svo komið á YouTube eða Facebook um leið! Ekki nógu sniðugt, held að enginn vilji fá mynd af sér á netið í sturtu eftir íþróttatíma svo dæmi sé tekið!
Hvaða ráðum er hægt að beita hér á landi? Sé ekki fyrir mér að menntamálaráðherra fari að vasast í þessum málum!
Farsímar bannaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góðan daginn hér.
Er þetta ekki bara spurning um að taka feminista leiðina á þetta og banna alla farsíma? Reyna síðan að breyta hugsun og vitund alþýðunnar þannig að hún líti á karlmenn sem nota farsíma sem glæpamenn en konur sem nota farsíma sem fórnarlömb ógeðslegra karlmanna?
Arnar (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 13:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.