Bloggfærslur mánaðarins, maí 2006
Þriðjudagur, 30. maí 2006
þessi og þessi og þessi og þessi, ekki þessi, þessi....
Er ykkur eitthvað farið að lengja eftir boðskortum í brúðkaup? Þau eru á leiðinni, eru að fara í gegnum prentsmiðjuna þessa dagana og í póst fyrir helgi - jei!
Er annars svona að fara yfir þá hluti sem að eru ógerðir ennþá og svitna alveg við að sjá listann verða stærri og stærri - mar hefði bara átt að fara til Vegas, svei mér þá! En þetta reddast vonandi allt í tæka tíð - búið að bóka kirkjuna og prestinn, er það ekki höfuðmálið?
Annars er það alveg komið á hreint hvað fólk ætlar sér að gera í sumar samkvæmt könnuninni sem að ég setti inn hér að neða. Sleikja sólina, grilla, synda, tjalda, sumarbústaðast og tjilla big time er það sem að stendur upp úr! Fæstir ætla að vinna og enn færri ætla að fljúga flugdreka. Það vill hins vegar enginn spila fúlan tölvuleik sem að er náttúrulega bara gott mál! Til hvers að vera að spila tölvuleik ef að hann er fúll?
Jæja, best að halda áfram skipulagningu...............pjúff................ ............blóð, sviti og tár!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. maí 2006
Graðskagavegur??
Hvar er þessi Graðskagavegur eiginlega?? Skemmtileg villa í fyrirsögn þó að efni fréttarinnar sé alls ekkert aðhlátursefni! Tekið af vef Víkurfrétta www.vf.is
Þriggja bíla árekstur á Graðskagavegi
Ökumaður, sem grunaður er um ölvun við akstur, olli þriggja bíla árekstri á Garðskagavegi milli Garðs og Sandgerðis á níunda tímanum í gærkvöldi.
Viðkomandi hugðist aka framúr bifreið en lenti á afturhorni hennar. Síðan lenti bifreið hans á kyrrstæðri bifreið sem var í vegaröxl. Farþegi í þeirri bifreið slasaðist og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan til Reykjavíkur til frekari skoðunar. Flytja þurfi tvær bifreiðar burt með dráttarabifreið.
Mynd: Úr safni VF og tengist ekki slysinu sem um ræðir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 25. maí 2006
Týnt!
Hvernig í ósköpunum stendur á því að þegar maður þarf á einhverjum ákveðnum hlut að halda, að þá finnst hann ekki. Og þegar maður þarf ekki á honum að halda - að þá er hann að þvælast fyrir manni í tíma og ótíma! Held að þetta sé eitt af lögmálum Murphy's!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 18. maí 2006
Júró hvað?
Verður spennandi að sjá hvernig Silvía Nótt stendur sig á sviðinu í kvöld, ég og mín fjölskylda ætlum allavegna að fylgjast spennt með. Allt getur gerst! Ætli maður verði ekki bara að vera hóflega bjartsýnn á það að hún komist áfram, mar er nú ekki búinn að gleyma hvernig fór fyrir Selmu greyinu í fyrra!!
Brúðarkjólamátun núna seinnipartinn - spennandi að sjá hvort að kjóllinn muni passa!
Margt búið að vera að gerast undanfarið, Aníta komin með enn eina eyrnabólguna og í þetta skipti vellur gröfturinn bara út útaf rörunum - þau virka allavegna rétt og hún virðist ekkert finna fyrir, nema bara að þetta er heldur subbulegt! Komin á pensillín en eina ferðina, nóg búið að bryðja af því á mínu heimili undanfarið. Annars á snúllan afmæli á sunnudaginn svo að undirbúningur fyrir þau hátíðarhöld er í fullum gangi.
Afmælisbarn dagsins er hún Anna Dóra móðursystir mín og er hún XX ára í kvöld Hamingjuóskir til hennar í tilefni dagsins!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. maí 2006
Já það er nú víst eins gott...
Útlendur plastblómasali rændi aldraða konu í Keflavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 13. maí 2006
Wow!
Ég segi nú barasta ekki annað. Hvað er í gangi? Ja, það er eins gott að sleppa ekki hendinni af snúllunum of snemma!! Og vera góð fyrirmynd.
Mér finnst bara 12 ára vera útí hróa hött! En það er nú í umræðunni að það þurfi að lækka aldurinn á kynlífsfræðslunni, og miðað við það sem að maður heyrir hjá þessum börnum uppí skóla sem að eru 11-12 ára - að þá er nú ekki vanþörf á því!!! Ef að ég heyrði rétt að þá var eitt af því sem að var mikið spurt um, hvenær væri maður orðinn nógu gamall til að hafa samfarir!!
Já, þetta er unga fólkið í dag! Iss, ekki var þetta svona þegar ég var að alast upp...hehehe
12 ára stúlka á von á barni í Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 12. maí 2006
Af barneignum!
Átján barna móðir í Litháen | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 8. maí 2006
Hvað á að gera í sumar?
Hvernig væri nú að taka þátt í skoðanakönnuninni hér að neðan? Hægt er að velja mörg svör og kjósa svo. Allir að kjósa - gaman að sjá hvað fólk ætlar að gera sér til dundurs í sumar!
Þetta var nú gaman - er það ekki?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 8. maí 2006
StrepA
Mín lögst í rúmið með Streptokokkasýkingu í hálsi - veit ekki hvar ég náði í hana - en ef að einhver ykkar sem að ég hitti í síðustu viku farið að fá hálsbólgu/eyrnabólgu og general slappleika, að þá sakar ekki að láta taka sýni! Drattaðist loksins til dokksa í gær eftir að hafa verið drulluslöpp og illt síðan á föstudag - og er komin á penisillín - guð hvað það er nú gaman eins og það er þekkt fyrir fáar aukaverkanir og ég fæ þær yfirleitt allar!! Reyndi að fara í vinnu í morgun, en var bara of sloj til að meika það, var skipað að fara heim og jafna mig betur! Svo að mín er bara heima núna - í rúminu - eins og góðum sjúklingi sæmir...hehehe je rægt, tók með mér vinnu heim, ætla að dunda mér við hana fram eftir degi, sé til hvort að ég leggi mig, ég þarf allavegna ekki að vera á þönum hérna heima eins og í vinnunni. Ég er ágæt svo framarlega sem að ég tek því rólega og bryð verkjastillandi á 5 tíma fresti!
Annars var kátt á hjalla hér á laugardaginn - bóndinn fékk góða afmælisgjöf frá góðu fólki og var hún brúkuð fyrir allt þetta góða fólk á laugardagskvöldið - namm namm - grilltímabilið er hafið!! Við tókum fram hoppukastalann fyrir börnin, veðrið var yndislegt og allt með besta móti - nema náttúrulega heilsan á mér sem að var hálf sloj.........en velheppnað kvöld engu síður.
Afmælisbarn dagsins er hún stóra systir mín, Auður, hún er 29 ára og 96 mánaða í dag - við óskum henni að sjálfsögðu til hamingju með afmælið - þið náið hennir undir http://konan.blog.is
Og, já, það verður svo 2. ára afmælisveisla hérna heima hjá okkur sunnudaginn 21. maí klukkan 15:00 - Aníta Ýrr snúlla á afmæli!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. maí 2006
kissíkissíkiss
Kossaflens talið draga úr ofnæmisviðbrögðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |