Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
Sunnudagur, 8. apríl 2007
Gleðilega páska - málshættir fjölskyldunnar
Jæja, allir búnir að finna páskaeggin sín í morgun og fólk á góðri leið með að fá í magann af súkkulaði óverdósi
Málshættir fjölskyldunnar að þessu sinni urðu:
Rósa: Sannleikanum verður hver sárreiðastur
Jón Fannar: Sætur er ábata þefurinn
Eliza Lív: Að hika er sama og tapa
Anita Ýrr: Lengi getur fullur etið og latur legið
Það er nú ekki hægt að segja annað en að páskaeggin í ár hafa hitt beint í mark...hehehe
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. apríl 2007
Stjörnuspá dagsins
Rakst fyrir tilviljun á stjörnuspánna mína inná MBL.is núna áðan, fannst hún viðeigandi í dag, hehe...
Vatnsberi: Fólk er yfir sig hrifið af þér, og þú ættir að reyna að njóta þess - jafnvel fá eitthvað út úr því! Vinir þínir elska að fá að kynnast þér með því að skoða myndir eða hitta fjölskyldina þína.
-ég þarf greinilega að líta betur í kringum mig og finna allt þetta hrifna fólk!
Laugardagur, 7. apríl 2007
Bloggpása...
...eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir að þá hefur ekki mikið verið bloggað hér á bæ að undanförnu. Fólkið er einfaldlega búið að vera upptekið við aðra hluti í frítímum sínum. Við fundum loksins húsgögn sem að okkur leist vel á og fjárfestum við okkur í svoleiðis um daginn. Eins er búið að vera að dytta að ýmsu smálegu í húsinu, vinna, sofa, fara í heimsóknir og fleira smálegt þannig að tölvan er eiginlega bara búin að vera vanrækt. Svo er ég líka búin að vera upptekin við að prjóna síðustu vikur - svo að þau 30.8% ykkar sem að svöruðu því í könnuninni að ég myndi taka fram prjónana, hafið haft rétt fyrir ykkur.
Gerðum okkur dagamun síðastliðinn miðvikudag, borðuðum á Reykjavík Pizza Company, namm namm, voða góðar eldbakaðar pizzur þar, mæli alveg með því. Síðan skelltum við okkur yfir í Möguleikhúsið við Hlemm, þar sem við sáum Epli og Eikur, með Hugleik. Alveg þrusugóð sýning og gaman að henni. Á eftir buðu Nína og Keith okkur heim til sín í rauðvín og osta og dvaldist okkur þar dágóða stund. Röltum síðan upp á hótel í rólegheitum, fyrst að maður var að gera sér dagamun, þá um að gera að gera það með stæl!
Erum búin að fara í 3 fermingarveislur að undanförnu og auðvitað var borðað á sig gat í þeim öllum. Í gær fengum við okkur langan* bíltúr í tilefni dagsins, á Flúðir, græddum bæði kaffi og með því og svo grillveislu um kvöldið áður en brunað var heim aftur. Það má segja að öll plön um kílóafækkun séu á hillunni þessa dagana. Á von á því að þurfa að leggjast undir skurðarhnífinn einhverntímann á næstu vikum til að láta laga gamalt/nýtt mein og þá í kjölfarið, vonandi, minnkar eitthvað spekið......hehehe
Komment dagsins í gær átti ég sjálf þegar við vorum á rúntinum. Búin að keyra í gegnum bæinn og Mosó og vorum komin á Þingvöll, og þar var líka flaggað í hálfa stöng eins og svo víða, svo að uppúr mér kemur; hver ætli hafi eiginlega dáið, það er barasta alls staðar flaggað í hálfa, meira að segja á Þingvöllum.* hahaha
*(ég vil taka það fram fyrir þá sem að ekki fatta, það var föstudagurinn langi!)