Sunnudagur, 26. nóvember 2006
Jóla hvað?
....við önsum þessu ekki.... ja, eða kannski barasta ekki alveg strax. Held að við verðum að flytja til að geta farið að jólast eitthvað fyrir alvöru. Assgoti sniðugt að flytja svona rétt fyrir jólin, og fyrsti kassinn sem að maður tekur uppúr er kassinn með jólaskrautinu hehe. En það er ekki alveg á döfunni strax, við höfum sett stefnuna á 9. des núna, en ætli maður verði byrjaður að tína eitthvað fyrr inn. Við erum að gólfleggja á fullu þessa dagana og klárum vonandi barnaherbergin í dag, og hjónaherbergið í vikunni. Flísalögnin er á lokastigi, búið að tengja vaska og klóið fer upp eftir helgi, málarinn klárar í næstu viku (vonandi, maður hefur enga stjórn á þessum mönnum!), svo að núna stendur bara á rafvirkjanum (hef enga stjórn á honum heldur). En hann vonandi lýkur sér af fyrir þann 9. des, því að þá ætla ég að vera endanlega flutt!! Við sem að ætluðum að flytja fyrir síðustu páska, en það klikkaði svona aðeins , en það stefnir allavegna í að við verðum komin inn fyrir jól, víííí.
Nýju nágrannarnir eru jólaljósaóð eins og við, svo að það stefnir í að við verðum soldið vel skreytt í ár, t.d. eru þau búin að setja upp ljósaseríu sín megin og nú stendur á okkur að halda áfram svo að hægt sé að kveikja allan hringinn. Frábært að vera með nágranna sem að vill gera allt í stíl, ég þoli nefnilega ekki þegar fólk getur ekki komið sér saman um svona hluti. Eins og útí London, mikið af parhúsum, annað kannski málað gult og hitt rautt osfrv. Nei, ég verð að hafa mitt hús nokkurnveginn í stíl og ekki útúr kú! já já, ég veit, ég er soldið skrýtin!
Jæja, best að koma sér af stað, henda börnunum í pössun svo að við getum haldið áfram, verðum semsagt uppí húsi í dag að græja gólf!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. nóvember 2006
Titlar
Jæja, þá er maður loksins orðin ömmusystir, ekki það að ég hafi verið farin að örvænta, enda bráðung ennþá og amman aðeins 4 árum eldri en ég! Það er svo skrýtið hvað svona titlar geta verið óraunverulegir. Mér finnst t.d. systir mín ekki líta út eins og ömmur eiga að vera. Mamma mín er langt frá því að vera langömmuleg og amma mín er ekki eins og langalangamma. Ég man eftir langömmum mínum, fjörgömlum með grátt hár, í hjólastólum eða á elliheimilum, rúmfastar og komnar yfir nírætt, þ.e. þeim sem að náðu að lifa það af að vera á lífi eftir að ég komst á vitsmunaaldur. Amma mín er t.d. enn í fullu fjöri, býr í miðbænum, fer á hverjum degi í sund, keyrir sér sjálf útum allan bæ og er á fullu í félagsstarfinu hjá eldri borgurum, dansar og spilar og föndrar enda ekki nema rétt rúmlega sjötug konan. Ég man reyndar eftir ömmu þegar ég var lítil, hún var svona miklu meiri ömmutýpa heldur en t.d. systir mín er, alltaf í eldhúsinu eða að sauma eða prjóna eða baka, en kannski breytist fólk bara við að hreppa þennan titil , maður veit aldrei hvað gerist. Ég held að það sé soldið erfitt fyrir ömmur nútímans að keppa við t.d. manns eigins ömmur. Konur sem að voru heimavinnandi og lifðu fyrir að stjana við börn og bú. En svona er þetta bara, tímarnir breytast og mennirnir með. En annars er þetta ekkert nýnæmi svosem í minni fjölskyldu, amma mín var t.d. á svipuðum aldri og systir mín er núna þegar hún varð amma systur minnar, og mamma mín var heldur yngri en það þegar hún varð amma, svo að kannski er þessi ömmuímynd eitthvað sem að kemur sjálfkrafa með ömmutitlinum. En ég fæ víst ekki að upplifa það í bráð, enda verð ég orðin fjörgömul þegar ég hef tækifæri á að verða amma, ja, svona á svipuðum aldri og mamma er núna, og hún er orðin langamma!! Vá, þetta er orðin langloka um langar ömmur...
Annars ætlaði ég bara að segja ykkur að hann Bumbuz litli frændi minn er loksins fæddur, kom í heiminn klukkan 23.26 á sunnudagskvöldið 19.11 og vóg 15 merkur og var 54 sentimetrar. Þetta hafðist að lokum en hafði þá staðið yfir í tæpa 45 tíma svo að allir voru orðnir þreyttir þegar hann loksins mætti á svæðið. Hann hafði greinilega ákveðið að fá sinn eiginn afmælisdag, þar sem að mamma hans átti afmæli þann 18 og langafi hans 20, svo að hann rétt slapp fyrir horn þann 19., svo að það verður nóg að gera á þeim bæ í nóvember, afmæli eftir afmæli eftir afmæli!!
Og hvað er svo með þetta veður, loksins kominn snjór, og þá bara slabbast allt niður - hvernig væri nú að fara ákveða sig með þetta þessir veðurguðir, maður er barasta ekkert viss um hvort að það sé vetur, vor eða haust??
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 19. nóvember 2006
32 tímar
Jæja, það styttist víst í það að maður fái nýjan titil, nú er Íris greyjið búin að vera með hríðar í 32 tíma og gengur hægt að útvíkkast. En skulum nú vona hennar og allra vegna að þetta fari að verða búið. Sendum henni hér með hríðarstyrkjandi kveðju
Já, nýji titillinn er víst ömmusystir, sem að þýðir bara eitt, systir mín verður amma, mamma verður langamma og amma verður langalangamma og það sem er sérkennilegasta við þetta allt saman er, að barnið er bæði skylt mér og Jóni Fannari og náttúrulega stelpunum okkar í báðar áttir. Já, svona getur heimurinn nú verið lítill og skrýtinn!
Og munið svo eftir því að fara varlega í hálkunni og klæða ykkur vel, það er ennþá kalt úti!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 15. nóvember 2006
Retail therapy!
Guð hvað það er góður fílingur að fara á smá sjopping spree og eyða fullt af peningum, bara í sjálfan þig. Alveg gasalega upplífgandi. Ég er svo heppin að með kjarasamningunum í starfinu mínu fæ ég úthlutað fatapeningum, reyndar stendur eitthvað um að ég eigi að klæðast dragt, en ég er nú ekki beinlínis þessi dragtartýpa, svo að ég fékk það á hreint að ég þarf ekki að klæðast dragt og fór svo bara og keypti mér fullt af huggulegum og kósý fötum! Alveg búin að fata mig upp fyrir veturinn held ég barasta. En á maður nokkurn tímann of mikið af fötum? Ég held barasta ekki.
En hvað er með þetta veður hérna? Brrrr, held að mér eigi seint eftir að hlýna almennilega aftur, eftir daginn í dag, er búin að vera með hroll í allan dag. Samt var ég í peysu, flíspeysu, úlpu, húfu og vettlingum í hvert skipti sem að ég brá mér út fyrir hússins dyr. (og kalla ég nú ekki allt ömmu mína í þeim efnum, er vanalega alltaf heitt!) Ég vorkenni bara aumingja börnunum í leikskólum og skólunum sem að eru send út að leika sér í þessum fimbulkulda. Núna t.d. er 6 stiga frost og 25 m/s klukkan 22:00 hérna suðurfrá. Það reiknast mér að sé um það bil jafngilt og ca. -30 °C, - jafnan fyrir þennan útreikning fylgir hér að neðan fyrir ykkur sem að finnst gaman að talnaleik.
Ck = (C + 272,2) × v^(0,0008×C - 0,0233) - 273
Þar sem Ck er vindkæling í °C og C lofthiti í °C og v vindhraði í m/s; v ekki minna en 3 m/s
Nánari upplýsingar um vindkælingu má t.d. lesa á þessari síðu.
Brrrr....ég held að ég skríði barasta undir sæng núna, reyni að sofna í þessu roki og hávaða, svei mér þá ef að það hvín barasta ekki meðfram öllum gluggum í húsinu núna og gervihnattadiskurinn er að hugsa um að leggja í leiðangur miðað við glamrið sem að heyrist ofan af þakinu!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 12. nóvember 2006
Myndir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 12. nóvember 2006
Annir
Já, það er mikið búið að vera um að vera hér á bæ undanfarið. Allt á fullu í húsinu og við annaðhvort þar að parketleggja eða í Byko að versla eitthvað sem uppá vantar. Þess á milli sefur maður og sækir vinnu. Aumingja börnin eru búin að vera óvenjumikið í pössun þessa vikuna, enda foreldrarnir með eindæmum uppteknir. Við búumst við að vera áfram soldið upptekin, enda stefnum við á að flytja í kringum næstu mánaðarmót ef að vel gengur að klára það sem klára þarf. Auðvitað hefur eitt og annað gengið á, vitlaust afgreiddur vaskur, baðið passar ekki miðað við staðsetningu blöndunartækja, borað í gegnum pípu, ekki nóg af gólfflísum og eitt og annað smálegt, en það er bara gaman að því og eru vandamál ekki til að leysa þau??
Halló Vín partýið um síðustu helgi heppnaðist með eindæmum vel, mikið stuð, mikil gleði og mikil skemmtun. Skelli hérna inn nokkrum myndum til gamans - og svo hittumst við bara að ári í næsta Halló Vín Partýi!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. nóvember 2006
Farsímafár!
Fyrir tæpum 8 árum eignaðist ég minn fyrsta GSM síma. Hann var af Ericson gerð og gulur/svartur á lit. Ég var alveg agalega lukkuleg með þennann síma og hann þjónaði sínu hlutverki vel, þar til ég eignaðist nýjan og síðan hef ég átt þá nokkra!! Það er alveg merkilegt hvað allt í einu, á örfáum árum, við erum orðin símavætt þjóðfélag. Það fer allt hreinlega á annan endann ef að maður er ekki í símasambandi einn dag.
Í morgun t.d., gleymdi ég að taka "gemmsann" minn með mér í vinnuna. Það kom svo sem ekki að sök, alltaf hægt að hringja í mig í vinnuna eða ná mér á MSNinu ef að svo liggur á fólki. Nema það, á miðvikudögum fer ég alltaf með Elizu í ballett beint eftir vinnu, svo að ég komst ekki í tæri við "gemmsann" minn fyrr en 18:45. Þá var ég með 34 missed calls og 4 skilaboð í talhólfinu.
Mikið assgoti er ég nú vinsæl!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 31. október 2006
Gleðilega Hrekkjarvöku!
Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er annar ritháttur fyrir Halloween. Halloween er svo stytting á nafninu All Hallows Evening eða All Hallows Eve sem er kvöldið 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar. Nánari upplýsingar má nálgast á Vísindavefnum
Sökum þess að þessi dagur ber uppá þriðjudag, höldum við uppá okkar síðbúna Halló Vín næstkomandi laugardagskvöld.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. október 2006
Allt að ske...
...eins og maður segir á lélegri íslensku
Í morgun gerðist lítið kraftaverk, það mætti maður með bílfermi af innréttingum og byrjaði að setja þær upp, þetta verður allt tilbúið fyrir helgi!! Þá á reyndar eftir að flísaleggja og parketleggja og tengja bað og vaska og draga í rafmagnið - en það er nú mikið komið þegar innréttingarnar, innihurðir og fataskápar eru komnir!! Núna vantar bara að spóla sér af stað í restina!! Verst hvað við erum tímabundin á næstunni, Norge næstu helgi og Halló Vín þarnæstu - og ef þið eruð eitthvað að móðgast með að hafa ekki fengið boðskort, að þá gæti verið að ég sé með gamlar e-mail addressur hjá ykkur, fékk eitthvað endursent!!
Brjálað annars að gera á öllum vígstöðvum á næstunni svo að það verður eitthvað lítið um uppfærslur hér. Við mæðgur eyddum seinnipartinum í að skoða flísalím, fræðast um parketlím og lagningu á því (apparently þarf að prima gólfið fyrst með grunn, og síðan þarf límið undir viðargólfið að passa við grunninn og gólfhitinn má ekki vera á fyrstu 24-48 tímana og þá má kveikja á honum en bara hækka um eina gráðu á sólarhring!!) og þetta lítur út fyrir að vera hið flóknasta mál! Einnig skoðuðum við líka klósett, flísar, vaska og baðker, við erum komnar með niðurstöðu í málið held ég, þarf bara að fara í Byko og "drepa" þetta á morgun!! Það væri náttúrulega bara týpískt mín heppni ef að þetta er svo ekki til á lager!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 19. október 2006
Netfíkn ??
Held að ég sé haldin þessum nýja sjúkdómi. Allavegna VERÐ ég að komast á netið og lesa féttir og blogg á svo til hverjum degi. Sörvæva reyndar alveg 1-2 vikna frí frá tölvunni, en alltaf er jafn gott að lesa fréttir aftur!
Ekkert nýtt títt, kallinn liggur í flensu, en við stelpurnar erum hressar, reyndar Anita einum of hress stundum, gráum hárum hjá okkur fer óðum fjölgandi! Um síðustu helgi varð hún frekar reið er hún fékk ekki sínu framgengt ( um að fá nammi ) og kallaði mig Kúkalabba! Núna er hún í því að segja eitt og annað við okkur, en klikkir út með "nei dók" sem að útleggst, "nei djók". Maður veit eiginlega ekki hvað maður gerir við svona óþekktargorm!
Prakkarastelpa!
Húsið er tilbúið undir parketlögn og flísalögn, eða svo til, vantar bara að sópa smá og ryksuga, hjálpsamir aðilar vinsamlegast gefið sig fram!
![]() |
Netfíkn verður algengari og alvarlegri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)